23ágúst
Skólamær
Þá er skólinn byrjaður. Ég mætti í minn fyrsta tíma í gær og líkaði bara ágætlega. Smá skrítinn kennari en það er í góðu lagi. Mér var hugsað til Maríu systu þegar hún fór að tala um að við værum allar svo þroskaðar í kvöldskólanum að það þyrfti ekki að fara vel yfir kynfræðslukaflann og vímuefnakaflann... og svo situr hún í dagskólanum með litlu börnunum að horfa á kynlífsfræðslumyndband.... hehe.. gift kona...Annars verður þetta smá törn hjá okkur hérna núna fram að jólum og mjög sennilega eftir áramót líka. Ég er í skólanum í 5 tíma í einu á þriðjudögum... úff... og svo er ég auðvitað í vinnu og að reyna að hugsa um heimili. Siggi að vinna á Kleppi með sínum kvöldvöktum og aðra hverja helgi þar sem hann er líka að vinna á Vegó. Sjáum hvernig þetta á eftir að ganga... en ef það heyrist ekkert í mér þá er ég örugglega kominn á Reykjalund vegna stress.
Ég er semsagt að taka 12 einingar í kvöldskólanum í FB. Það er alveg slatti mikið miðað við að ég er að vinna og halda úti heimili í leiðinni. En mikið hlakkar mig til að byrja fyrir alvöru. Ég er að fara í bóklega og verklega hjúkrunarfræði og hlakka mikið til að vita hvað ég á að gera í verklegri... sprauta appelsínur eða hvað?
Tók eftir því í gær hvað ég er algerlega dottin úr skrif-og lesæfingu. Ég var ekki lengi í gær og þurfti bara að skrifa niður einhverjar 3 línur en ég fann til... þvílík brunatilfinning. Svo var ég að lesa námsáætlun og hún er ferlega einföld en ég var mjög lengi að fara yfir.
Jæja... ég þarf að fara að læra heima.... jibbíííí... hélt að ég myndi aldrei verða ánægð með að segja það hehehe..
Bæjó
